Nanna og Snorri

Bloggið okkar

08.11.2010 22:33:31 / nannagw

á maður að byrja aftur???

hmmm á maður að byrja aftur að blogga... hefur maður kannski ekki nóg annað að gera. Fésbókin er nú nokkurs konar blogg er það ekki???
kv Nanna


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.09.2008 19:58:29 / nannagw

Flutt

Ó MÆ GOD!!!!!!!!
VIÐ ERUM FLUTT!!!
Þessi yndislegu hjón mín Jón og Ranný, þið eruð æði og við elskum ykkur ógó mikið!!!
Við erum flutt upp og þau eru flutt í sveitina:( Eigum eftir að sakna þeirra samt þó svo við séum komin í stærra húsnæði og líður ógó vel.
En jább nú get ég farið að huga að skólanum, Jebb mín er komin í háskóla, loksins að læra leikskólakennarann.
Ætla nú að hafa þetta í styttra lagi núna, set meira seinna.
kv Nansý pansý


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.05.2008 23:22:55 / nannagw

Vó geggjuð helgi og myndir af Gísla frá Röggu

Hér koma nokkrar myndir af Gísla sem hún elsku Ragga tók af honum þegar hann fór að lúlla hjá þeim um daginn.. Takk Ragga..






Svo á Laugardaginn var þá var hún elsku Lotta mín gæsuð og hér á eftir fylgir ein mynd en svo eru fleiri í albúmi..
Til hamingju með geggjaðn dag snúlla mín..



» 1 hafa sagt sína skoðun

04.05.2008 19:05:12 / nannagw

Afmælið mitt..

Hér koma nokkrar myndir frá henni Helgu Erlu minni.. Takk Helga mín..





Fleiri myndir í myndasafni..

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.05.2008 13:14:57 / nannagw

30 ára í dag

Jei ég er orðin þrítug.. 



» 5 hafa sagt sína skoðun

21.04.2008 23:06:40 / nannagw

Jæja

Jæja smá skrif sem verða ekki löng...
Þreytt, vinna, sofa, skúra, labba heim, dagleg störf hér heima, þreytt, sofa...
Jebb svona eru mínir dagar þessa dagana.. Vinnubíllinn bilaður og kemst ekki strax á verkstæði, við Gísli löbbum á leikskólann og heim aftur eftir daginn.. Vó þetta tekur á að labba í þessum brekkum hér.  En..
Allt lagast örugglega fljótlega, ég er að verða þrítug og á ekki lífið að verða yndislegt þegar maður nær þeim aldri?? Eins gott!!

En jæja best að koma sér í bólið, Gísli verður heima í fyrramálið með ömmu(jebb sem lúllar hjá okkur í nótt), ætla að reyna að koma honum til læknis á morgun, er farinn að hósta aftur svo mikið að það þarf að hlusta hann.  Vona bara að hann fari nú að ná þessu uppúr sér, en svona er nú að byrja á leikskóla og vonum að þetta sé bara það..
Bæbæ og Góða nótt í bili..
lov u all


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 18:07:38 / nannagw

Jemin mikið að gera og Gísli byrjaður á leikskólanum

Jæja þá hefur lífið hafið sinn vanagang hihi, jabb er byrjuð að vinna.. hihi
Gísli byrjaður í leikskólanum og ég að vinna.. Rosalega fínt að vera komin aftur og hún Helga stjóri er svo yndisleg og bauð mér frábæran vinnutíma,.. byrja alla daga kl 8.30 og á mánudögum er ég búin kl 15, þriðjudaga kl 13.30, miðvikudaga og fimmtudaga kl 15.30 og föstudaga kl 12..:haha::lol:
Gísli er að standa sig eins og hetja í aðlöguninni og er að bræða allar kellurnar ;)

Hér er mynd af Gísla af heimasíðunni hjá leikskólanum í aðlöguninni

En utanlandsferðin var algjört æði og nutum við hennar alveg í botn!! Alveg nauðsynlegt að fara svona út á þessum tíma, til að stytta veturinn eh veginn.. Gísli var svo bara í dekri hjá ömmu og afa í Keflavík og var sko búinn að stækka helling. Set inn myndir frá ferðinni þegar ég er búin að læra á þetta nýja kerfi hér á blogcentral.is




» 3 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 10:18:01 / nannagw

Gísli er orðinn 1 árs

Já þessi elska varð 1 árs í gær, 26.janúar.. Ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram!! Við vorum með afmæli hér í gær og það var ekkert smá gaman.. Einhverjir afboðuðu sig en auðvitað eru alltaf einhverjir sem komast ekki og þá er bara um að gera að kíkja seinna:)

En svo fer að líða að mann fari að sjá sólina.. Við hjúin, Jón og Ranný ætlum að ,,kíkja,, til Tenerife á miðvikudaginn og vera í viku.. Get ekki beðið!!!! Gísli ætlar bara að vera í orlofi hjá ömmu og afa í Kef.. í dekri.. Það verður örugglega rosalega skrítið að fara í burtu frá honum í svona langan tíma en ég held að þetta verði nú bara allt í lagi, við höfum bara gott af þessu, held ég..

Svo þegar við komum heim þá tekur við ný venja hjá okkur.. Við Gísli erum að fara á leikskólann, ég að vinna og hann að byrja á Dvergasteini:lol: .. Já það er komið að því, litlinn er að byrja á leikskóla.

En jæja nóg í bili.. set inn nokkrar myndir frá því þegar Gísli fæddist og fyrstu dagana heima..

Hér erum við og hann er 2ja tíma gamall. Ég fékk hann ekki strax í fangið þar sem barnalæknir þurfti að skoða hann allann þar sem legvatnið var grænt og ljósan þurfti að sinna mér eftir átökin

Þreyttur eftir þetta allt saman

Að fara heim með mömmu og pabba

Í lófanum á Ranný frænku.. sem dekrar mig alltaf:)

Jemin svo fallegur:)

Og svo myndir af mér að verða 1 árs



Æðislegur:) Get nú bara ekki sagt annað..


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.12.2007 20:24:03 / nannagw

Jæja Gleðileg Jól öllsömul..

Hef ekki haft mikinn tíma til að blogga þannig að ég segi bara..

 

 

 

 

OG 

 

 

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.11.2007 13:12:55 / nannagw

Bloggleysi hjá minni...

Já það er sko búið að vera algjört bloggleysi hjá minni undanfarið.. það eru bara veikindi á bænum, fórum til kef síðustu helgi og Gísli varð lasinn og vorum bara hjá mömmu fram á miðvikudag, Snorri á fullu að læra fyrir skólann, fór í saumó með gömlu vinkonunum í gær og við Elísa og Gísli verðum bara ein heima í kvöld þar sem Snorri er að fara í óvissuferð með vinnunni..

Ég var búin að skrifa hellings klausu hér um daginn hvað við hefðum verið að bralla en það komst aldrei inn, datt allt út og alles en ég set bara inn nokkrar myndir í staðinn..

 

 

Halloween partý hjá Heiðari og Röggu, ógó gaman!!! 

Fór í óvissuferð með Garðaselssaumó.. þvílíkt flott hjá Hörpu og Halldóru, algjör dekurdagur!!

 

Allt gengur ágætlega hér að koma sér fyrir, reyndar ekki komin með klósett eða innréttinguna upp þar sem allir eru svo bissí og Snorri duglegur að læra.. en um leið og skólinn er búinn þá verður hann enga stund að henda þessu upp.. 


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 21:54:41 / nannagw

Gísli 9 mánaða í dag :)

Já tíminn líður allt of hratt..

Elsku rósin mín er orðinn 9 mánaða..

 

Á morgun ætla amma að halda upp á 80 ára afmælið, varð áttræð í gær og ætlar að vera með svaka veislu.

Oh my Gísli fékk ótrúlega flott dress frá Rut frænku og Ómari, ekta kínaföt úr silki.. Þau voru í Kína og Tælandi.

En nú ætla ég að fara að lúlla, ógó þreytt eftir daginn..

lov u, Nanna 


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 19:19:32 / nannagw

Bloggleti..

En ætla að setja hérna smá "týpískan" spurningalista fyrir ykkur sem kíkið alltaf á síðuna, endilega svarið þessu á kommenti.

 1.hvað heitir þú?

2.hvað ertu gamall/gömul ?

3.ertu á lausu eða föstu?

4.hvaða tónlist hlustaru mest á?

5.hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú sérð mig?

6.hvaða 5 hlutir minna þig á mig?

7.ef ég myndi biðja þig um msn-ið þitt, hverju myndiru svara?

8.hvað finnst þér skemmtilegast að gera?

9.hver er “Idolið” þitt?

10.hvern þykir þér vænst um?

11.ertu ástfangin/n ?

12.hefuru verið ástfangin/n ?

13.Hver er heitasti skemmtistaðurinn í dag?

14.ætlaru að plögga þessu á síðuna þína svo ég geti svarað þessum spurningum hjá þér?


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 19:18:58 / nannagw

Kominn í Kópavoginn..

Jæja þá erum við flutt og allt að gerast hér heima.. Þetta gengur pínu hægt að koma hlutunum fyrir hér en náði nú að gera samt helling í dag.. En sú fyrsta sem kíkti í kaffi var hún Hlín mamma hennar Elísu, held nú að hún hafi nú bara verið forvitin að sjá þar sem hún bjó hér með Snorra á sínum tíma :lol: Fólki finnst þetta nú örugglega skrítið en ekki okkur. Við erum svo góðar vinkonur að það er bara æði. Ekki margir sem hafa svoleiðis hjá fyrrum mökum. Takk fyrir kíkið Hlín, þó svo það hafi verið rosa stutt:) En þið sem hafið ekki hugmynd um hvar ég bý núna þá heitir þetta Brattatunga og er númer 5. Endilega kíkja í kaffi allir.:haha:

Kv Nanna 


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 08:51:03 / nannagw

Flytja af Álfholtinu... :(

Jæja þá er komið að því, við erum að yfirgefa álfana.. :cry: En það kemur bara eh betra.. Í dag verða svo stóru flutningarnir, við eigum svo rosalega gott fólk í kringum okkur að það er bara öll familían og fleiri til að hjálpa. Mamma og pabbi og tengdó auðvitað, Svenni frændi kemur, Heiðar brósi og Kiddi brósi, Bryndís og Bjarni ætla að koma, auðvitað Jón og Ranný býst ég við, þessar elskur, Arnþór frændi Snorra kemur þannig að við erum sko fullmönnuð á þessum bæ:haha::haha:

(hvor gæti verið ég og hvor gæti verið Snorri)

 

Hjá mér er nú bara smá kvíði.. þetta er alveg það leiðinlegasta sem ég geri en það er svo gaman þegar maður er kominn á nýja staðinn, þegar búið er að tæma þann gamla.. Svo á fimmtudaginn förum við svo til Köben og Gísli ætlar að vera bara í kef..

En hann er nú ekki sonur pabba sins fyrir ekki neitt, náði sér í hlaupabólu hjá henni Hrafnhildi systir Elísu(sem er nú bara í lagi, þá er það bara búið;)), því þegar Snorri fékk hlaupabóluna sem barn þá voru þau einmitt að standa í flutningum líka nema Snorri var víst sárlasinn. En Gísli fær það frá mömmunni að kvarta ekki yfir þessu öllu saman:haha::lol::haha::haha:


En jæja best að fara að gera eh hérna, gera hlutina reddý þannig að bæjó í bili og ,,sjáumst,, í Kópavogi..

bæjó Nanna og Gísli (sem liggur bara á gólfinu og biður að heilsa)


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 22:19:04 / nannagw

Allt á fullu allstaðar...

,,Allt á fullu allsstaðar,,

 Ó já það er sko mikið að gera hjá manni núna.. Snorri er á fullu að spasla, mála, pússa, brjóta, bramla, smíða í ,,nýju,, íbúðinni og ég er á fullu að vesenast í baðinnréttingunni og pakka hér heima...  Þetta á eftir að vera rosalega flott hjá okkur í Kópavoginum.

Jón og Ranný eru algjörir englar!! 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1365 dögum
Ég verð 30 ára
Dagsetning
28. janúar 2012
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
Ástarengillinn minn:)
Myndir
G�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 734529 dögum
G�?�?�?�??�?�??�?­sli Wium f�?�?�?�??�?�??�?¦ddist
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 734529 dögum
RSS tengill